0

Karfan þín

Samtals:

Skráðu þig inn

Vöru bætt við í körfu

Vöru bætt við í körfu

Image One

SEAL IT BLEED BLOCKER PRIMER 12,5l

35.571 kr.

- +

Til á lager

Lýsing:
Bond It Roof Seal Primer er hágæða, leysiefnalaus grunnur sem er sérstaklega hannaður til að undirbúa yfirborð úr biki, þakpappa og asfalti áður en Bond It Roof Seal Liquid Membrane eða EASISEAL PRO er borið á. Grunnurinn eykur viðloðun, kemur í veg fyrir að litarefni úr biki blæði í gegnum yfirborðshúðina og tryggir endingarbetri vatnsþéttingu.

  • Helstu kostir
  • érstaklega þróaður fyrir bik, þakpappa og asfalt
  • Kemur í veg fyrir að litur úr biki komi upp í gegnum lokahúð
  • Eykur viðloðun vatnsþéttingar
  • Leysiefnalaus og auðveldur í notkun
  • Borinn á með pensli eða rúllu
  • Til notkunar áður en Roof Seal Liquid Membrane eða EASISEAL PRO er borið á
  • Notkunnarsvið
  • Bond It Roof Seal Primer er ætlaður fyrir:

    • Þök með þakpappa
    • Bikþök
    • Asfaltyfirborð
    • Eldri þakklæðningar úr biki
    • Viðgerðir og endurnýjun vatnsþéttingar á þökum
  • Hvernig er efnið notað
  • Yfirborðið skal vera hreint, þurrt og laust við olíu, fitu, ryk og lausar agnir. Fjarlægja skal mosa og annan gróður áður en grunnurinn er borinn á.
  • Berið eina jafna umferð með pensli eða rúllu.
  • Á mjög grófum eða ójöfnum flötum, eða yfir vatnsbundnu biki, getur þurft tvær umferðir.
  • Leyfið grunninum að harðna að fullu áður en vatnsþéttihúðin er lögð. Við venjulegar aðstæður tekur það um 18 klukkustundir, en í köldu veðri getur þurrktíminn lengst í allt að 48 klukkustundi
  • Tæknilegar upplýsingar
  • Litur: Ljósblár við ásetningu (þornar glær)
  • Stærðir: 2,5 L og 12,5 L
  • Notkunarhitastig: +5°C til +25°C
  • Þekja: Um 2–3 m² á lítra, fer eftir gleypni yfirborðs
  • Þurrktími: Um 18 klst. við +18°C
  • Gerð: Einþátta, leysiefnalaus grunnur
  • 1
  • Mikilvægt að hafa í huga
  • Til að ná hámarksendingu þarf að tryggja að allt yfirborð úr biki eða þakpappa sé fullkomlega hulið með Roof Seal Primer áður en Roof Seal Liquid Membrane eða EASISEAL PRO er borið á. Ófullnægjandi grunnun getur valdið litablæðingu eða skert viðloðun vatnsþéttingarinnar.
  • Sjá tækniblað hér
  • Sjá Notkunnarleiðbeiningar hér