0

Karfan þín

Samtals:

Skráðu þig inn

Vöru bætt við í körfu

Vöru bætt við í körfu

Image One
Image
Image
Image

Patio Seal Premium 5L (4)

8.497 kr.

- +

Til á lager

Lýsing:

Bond-It Patioseal er vatnsbundið, leysiefnalaust akrýlþéttiefni sem verndar hellulagnir, stéttar, gangstíga og steypta fleti gegn raka, óhreinindum, olíu og veðrun. Efnið myndar sterka og endingargóða verndarfilmu sem lengir líftíma yfirborðsins og auðveldar þrif og viðhald. Patioseal dregur úr vatnsupptöku, kemur í veg fyrir að óhreinindi festist og hægir á myndun mosa, myglu og sveppa. Á sama tíma eykur það UV-vörn og hjálpar til við að varðveita lit og útlit hellulagna í mörg ár.

  • Helstu kostir
  • Verndar gegn vatnsíferð
  • Minnkar olíu, fitu og bensínbletti
  • Dregur úr óhreinindasöfnun
  • Hindrar myndun mosa og myglu
  • Bætir UV-vörn
  • Lengir líftíma hellulagna og steyptra flata
  • Mött og náttúruleg áferð
  • Lítil lykt og engin leysiefni
  • Auðveldar reglulegt viðhald og þrif
  • Notkunnarsvið
  • Bond It Patioseal hentar meðal annars fyrir:
  • Hellulagnir
  • Innkeyrslur
  • Gangstéttar
  • Verandir og útipalla úr steypu
  • Náttúrustein
  • Steypta garðstíga
  • Steyptar plötur og gangsvæði
  • Hentar Á
  • Steypu
  • Steyptar hellur
  • Steypta innkeyrslu
  • Náttúrustein
  • Steinklæðningar
  • Múrsteina og steinhellur
  • Athugið: Ekki skal nota á ógegndræp eða gljáandi yfirborð.
  • Hvernig á nota
  • Yfirborðið þarf að vera hreint, þurrt og laust við olíu, fitu, mosa og önnur óhreinindi áður en efnið er borið á. Hristið ílátið vel fyrir notkun.
  • Berið eina jafna umferð á með:
  • Pensli
  • Rúllu
  • Gúmmísköfu (squeegee)
  • Forðist að efnið safnist í polla. Ekki bera á ef rigning er í kortunum eða yfirborðið er rakt. Þurrktími er yfirleitt 3–4 klukkustundir við góð skilyrði.
  • Tækniupplýsingar
  • Grunnur: Vatnsbundið akrýl
  • Litur: Gegnsætt (þornar glært)
  • Áferð: Matt
  • Notkun: Tilbúið til notkunar – ekki þynna
  • Vinnsluhitastig: +5°C til +30°C
  • Þurrktími: Um 3–4 klukkustundir
  • Þekja: Um 10–15 m² á lítra, fer eftir gleypni yfirborðs
  • Viðhald 
  • Þegar yfirborðið fer að missa vatnsfráhrindandi eiginleika má endurnýja vörnina með einni nýrri umferð. Einföld vatnsprófun sýnir hvort þörf sé á endurmeðhöndlun  ef vatnið perlar á yfirborðinu er verndin enn virk, en ef það sogast inn er kominn tími á nýja umferð
  • Skoða tækniblað hér
  • Skoða öryggisblað hér